…ég er búin að vera að vinna svo skemmtilegt verkefni undanfarnar vikur. Ég kom inn í þetta svona með seinni skipunum og litapallettann og efnisval var alveg gríðarlega falleg og spennandi…

…eldhúsið var ótrúlega flott, en eins og þið sjáið þá eru þarna tveir vaskar þar sem þetta er að þjóna fjölmörgum einstaklingum og þessar flottu opnu hillur, frá Ikea, sem bjóða upp á svo skemmtilega uppröðun. En eins og ég hef oft sagt þá eru það svona opnar hillur sem bjóða svo upp á að blása karakter í rými…

…eins og þið sjáið hérna! Spáið bara í hversu mikill munur það verður við það eitt að raða í hillurnar, algjörlega magnað hversu miklu það breytir…

…það var líka búið að setja þiljur framan á eyjunna, og ótrúlega fallega viðarborðplötu ofan á…

…en ég mælti með því að mála þiljurnar svartar, þar sem mér þótti bæði borðplatan og viðbitarnir í loftinu, njóta sín mikið betur…

…ég er algjörlega á því að það var alveg nauðsynlegt – gerði rýmið mikið meira grand!


…við settum þessa fallegu vegghillu frá Dorma á einn vegg. Svo ótrúlega töff hilla og mikill karakter:
Smella hér til að skoða!

…stundum þarf líka ekkert að fylla upp í allt plássið – það eru bara nokkrir velvaldir hlutir sem gera gæfumuninn…



…okkur vantaði gangaborð og ég fann einfalt eikarborð líka í Dorma;
Smella hér til að skoða!

…síðan var bara fundinn falleg borðplata í Efnismiðluninni og hún söguð í rétta lengd. Einföld lausn en fallegt borð…

……stundum þarf ekkert að flækja hlutina neitt of mikið…

…það eru svo ótrúlega falleg gerviblómin í Dorma og týndi saman í einn fallegan vönd, en vasinn er líka þaðan:
Dorma skrautblóm – smella hér!
Dorma vasi – smella hér!

…eins er skál alltaf snilld svona við inngang, fyrir lykla og annað smálegt sem vill falla til…



…kíkjum aðeins aftur í eldhúsið…

…annar kostur við að mála þiljurnar svartar, var að þær fela svona vel innstungurnar – eins og sést hér…



…síðan er þetta alltaf spurning um að vera með skrauthluti og nytjahluti, og smá af blómum – auðvitað. Snilldin við “bækurnar” er að þetta eru geymslubox…



…þarna er t.d. skurðarbretti, kökudiskur og kanna til skrauts…



…ótrúlega skemmtilegt verkefni og gaman að deila með ykkur svona nokkrum velvöldum myndum ♥

ps. þætti vænt um að þið mynduð smella á like-hnappinn ef þið höfðuð gaman
af póstinum og ekki væri nú verra að heyra aðeins frá ykkur!
