Þetta fallega heimili í Dallas sameinar klassískan byggingarstíl og hlýlegan, afslappaðan stíl sem minnir á Kaliforníu. Húsið stendur í skjóli gamalla trjáa og hefur yfir sér tímalausan glæsileika.


Að utan setja hvítmálaðir múrsteinsveggir og fallegar línur hússins tóninn en að innan skapa valhnetuviður, marmari, vandaðar panelklæðningar og náttúruleg efni hlýlegt og fágað yfirbragð.


Stofan er notaleg með fallegum veggpanelum, eldhúsið býður upp á notalega samveru og svefnherbergið með himnasæng og baðherbergið, sem minnir á lúxusheilsulind, skapa ró og notalegheit.


Hér fer klassískur glæsileiki saman við afslappað andrúmsloft. Heimili þar sem falleg hönnun og þægindi haldast í hendur og hvert rými hefur sinn karakter.






Þessi mildi og fallegi blái litur í veggfóðrinu gerir einstaklega mikið fyrir rýmið.


Stílhrein baðherbergið.



Listarnir á veggjunum er sérlega fallegir, setja mikinn svip án þess þó að stela athygli.

Svo verða bara öll heimili fallegri með hundi ♥

Design: MBC Interior Design
Photography: Lisa Petrole
Styling: Russell Brightwell
