Kózý molar…

…það er eitthvað extra kósý við haustið og það fór næstum fram hjá mér þetta árið. Við erum nefnilega búin að standa í svo miklum framkvæmdum hérna heima í bílskúrnum, og verið í kapphlaupi við tímann – þannig að maður finnur það enn betur hvað það er mikið hversu notalegt það er að staldra við. Njóta þess að vera heima og kúra, eins og Molinn kann svo vel…

…það er líka eitthvað svo notalegt að vera heima – þegar að sólargeislarnir teygja sig inn í gegnum gardínurnar…

…best að setja hérna inn hlekk á póst um “nýju” stólana – því þið spyrjið alltaf um þá þegar ég sýni fram þeim – smella hér!

…ég var líka að spá að ég er búin að vera óvenju lengi með þennan vasa á borðstofuborðinu, en ég er bara svo endalaust hrifin af honum – en bæði vasinn og blóminn fást í Dorma…

…ég rakst líka á málverk eftir hann pabba á sölu hjá Gallerí Fló núna um daginn og stóðst ekki mátið – þið getið skoðað Gallerí Fló með því að smella hér…

…skrítið hvað maður “þarf” að bjarga öllum myndunum hans pabba heim, þetta er svona eins og að fá hann smá til baka…

…þetta hér er eitt af mínum uppáhalds, sólstafirnir að dansa á veggjunum – ljós og skuggar…

…sjáið líka á veggnum við skápinn – þetta er alltaf svo fallegt…

…eins og þið sjáið kannski á myndunum, þá eru þær vel flestar allar teknar úr hægindastólnum mínum – þar sem ég sat með Mola í fanginu og sneri mér eftir því hvað mig langaði að mynda. Þannig að – sitja og njóta þess að horfa á það sem fallegt er…

Litur á veggjum: Blíður frá Slippfélaginu ♥

…hér er annað uppáhalds. Blómin í fremri vasanum eru ekta en hin eru skrautblóm, það er varla hægt að sjá það á myndunum – ekki satt? Langi flotti löberinn minn er frá Húsgagnahöllinni – smella hér!

…ahhhhhhh – þetta var nú ósköp lítill póstur og vonandi höfðuð þið gaman að ♥

ps. þætti vænt um að þið mynduð smella á like-hnappinn ef þið höfðuð gaman af póstinum og ekki væri nú verra að heyra aðeins frá ykkur!

Post navigation

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *