…í kvöld verður haldið jólakvöld í Húsgagnahöllinni að Bíldshöfða, frá kl 19-22 (og á Akureyri). Þetta hafa verið einstaklega hátíðleg og skemmtileg kvöld, og ég var svo heppin að vera boðið að verða á staðnum, með einhverjar skreytingar og svo auðvitað til þess að sýna ykkur jólavöruna sem við versluðum í Frankfurt fyrr á árinu að gera jólaskreytingar. Ég ætla að að sýna ykkur smá forsmekk á jólavörunni sem búið er að setja upp í Höllinni, sem er dásamlega falleg að vanda!

| Jólakvöld 5. nóvember |
| Komdu og njóttu töfrandi jólakvölds í Húsgagnahöllinni í Reykjavík og á Akureyri. Við frumsýnum glæsilegt úrval af jólavörum og bjóðum upp á jólalegar veitingar, ljúfa tónlist og sannkallaða hátíðarstemningu. 25% afsláttur verður af allri smávöru og valdar vörur verða á 25-50% afslætti út sunnudaginn. ATH.: Afslátturinn tekur gildi á miðnætti og byrjar þá smám saman að birtast á vefnum. |
Reykjavík kl.19-22
- Soffía hjá Skreytum hús verður á staðnum og sýnir okkur skemmtilegar hugmyndir að jólaskreytingum.
- Slippfélagið verður einnig á staðnum með skemmtilegar hugmyndir, nýjustu litatrendin og faglega litaráðgjöf.
- MS býður upp á gómsætar jólaveitingar ásamt sælkeravörum frá Lie Gourmet.
- Möndlubásinn verður á staðnum.
- Dásamlegt góðgæti frá Nóa Síríus verður í boði.
- Þríeykið í Fjörkunum leikur ljúfa jólatóna og fyllir Höllina af sannkallaðri jólastemningu.
- Veglegar gjafir verða í boði fyrir fyrstu 100 sem versla fyrir 10.000 kr.
Akureyri kl.19-22
Full búð að fallegum jólavörum, skreytingum og jólagjafahugmyndum fyrir hátíðarnar.
- MS býður upp á gómsætar jólaveitingar ásamt sælkeravörum frá Lie Gourmet.
- Dásamlegt góðgæti frá Nóa Síríus verður í boði.
- Jólabjór frá Kalda og ljúfir drykkir verða á boðstólnum.
- Veglegar gjafir ver



…Höllin er að sjálfsögðu komin í jólabúning og svo mikið til af fallegum trjám og greni, og ég verð að benda á Kahle-húsin sem eru í miklu uppáhaldi hjá mér…

…bjöllurnar, sko bjöllurnar – þær eru komnar og þær eru stórkostlegar!!!



…svo fallegar inn í kransana t.d…

…þessir jólasveinar eru dásemd og svo eru þessir pokar svo mikil snilld fyrir jólagjafir – koma í nokkrum stærðum…



…sjáið bara hversu fallegt þetta er allt saman…

…kona sem elskar bjöllur eru góðum málum þarna…

…mikið af fallegum trébrettum – þarna eru bæði jólatré og snjókallar sem eru æði í jólapakkana…

…og öll Höllin er í jólaskapi…

…ég tók nokkra hluti með mér heim til að mynda – og grenið, mamma mía, grenið er svo fallegt…



…þessi risabakki er á óskalistanum mínum, og þessi gervikrans er dásemd – bæði sem hurðakrans eða fyrir t.d. aðventuskreytingar…


…sjáið bara…



…þessir bollar koma með nokkrum mismunandi myndum – alveg gordjöss…

…og svona jólatrésbretti, fullkomið í pakka með nokkrum ostum t.d…

…mjög hugguleg og falleg gjöf…

…ég varð auðvitað að skella bjöllum á brettið, því – ég er ég 🙂

….þessar luktir koma í nokkrum útgáfum og stærðum – svo fallegar…

…já og auðvitað bjöllur á lampa líka…

…annað sem ég er mjög hrifin af núna eru allir þessir dásamlegu kertahringir – svo fínlegir og fallegir og glitrandi og bara skemmtileg leið til þess að poppa aðeins upp kertin og stjakana…




…jér setti ég t.d. bara fallega kertastjaka inn í kransinn sem ég sýndi ykkur áðan…

…og síðan notaði ég tvær lengjur hérna saman, skrautlengju og jólasokka til þess að skreyta aðeins forstofuna…

…þetta greni er svo raunverulegt og fallegt…



…talandi um fallegt greni þá eru líka alls konar flottar greinar til, hér eru þær bara saman í grófum vasa og með stjörnustjökunum – þessir eru æði…



…ég hlakka mikið til þess að sjá ykkur vonandi sem flest í kvöld ♥
Smella hér til að skrá ykkur á kvöldið!

ps. þætti vænt um að þið mynduð smella á like-hnappinn ef þið höfðuð gaman
af póstinum og ekki væri nú verra að heyra aðeins frá ykkur!
