KristaDesign…

…mér finnst gaman að nota þennan miðil minn til þess að beina sjónum mínum, og þar af leiðandi vonandi ykkar líka, að litlum verslunum og hönnuðum, og vonandi að kynna ykkur fyrir einhverju nýju og spennandi.

Þessir póstar eru unnir af mínu frumkvæði og einfaldlega vegna þess að mig langar að dreila með ykkur því sem mér þykir fallegt. Í þetta sinn langar mig að segja ykkur frá dásamlega merkinu KristaDesign, sem elsku María Krista vinkona mínn er með. En það er eiginlega alveg óskiljanlegt að ég skuli ekki vera búin að sýna ykkur þetta hér fyrir lööööööngu síðan…

Ég er nokkuð viss um að þið þekkið velflest hana Maríu Kristu en hún var auðvitað áður annar hlutinn í Systur og Makar, og svo er hún vel þekkt sem KristaKetó á Instagram. En hún er líka með vefverslun sem er full af alls konar gullfallegum hlutum sem eru svo heillandi…

Heimasíða KristuDesign!
KristaDesign á Facebook!

Athugið að allar myndir eru fengnar af síðunni hennar Kristu og skáletraður texti er hennar!

Skartið hennar Kristu er í miklu uppáhaldi hjá mér, bæði lokkarnir og hálsmenin. Haldast alltaf eins, alltaf falleg sama hversu mikið þau eru notuð ♥

Smella fyrir skartgripi!

En Eilífðarmenið er nýjasta sköpunarverkið hennar og ég elska mitt og er alltaf með það:
Nisti með tveimur hringjum sem festast saman á hringjunum. Textinn á nistinu er Saman – að eilífu og táknar vináttu, ást, sameiningu, tryggð og hamingju. Nistin eru með fallegri keðju sem glitrar á og koma í tveim síddum 48 cm og 52 cm fyrir þá sem vilja velja síddina. Nistin eru úr ryðfríu stáli og gylltu eru húðuð.
Það fellur ekki á þessi nisti og hægt að sofa með og fara með í vatn.

Eilífðarmen í gulli – smella hér!
Eilífðarmen í silfri – smella hér!

Kertastandarnir frá Kristu hafa verið mjög vinsælir síðustu ár enda tímalaus hönnun og endingargóð. Standarnir eru í 3 útfærslum og 2 stærðum og eru framleiddir úr áli. Gúmmíið sem er í stöndunum er úr endurunnum hjólbörðum og er mjög endingargott. Álið er húðað svart og sést því lítið sót á stöndunum sem henta bæði á leiði sem og á útitröppur eða palla.

Efniviðurinn er endurunnið gúmmí frá Gúmmívinnslunni á Akureyri og ál sem er dufthúðað og því sérlega sterkt og endingargott.

Kertastandar – smella hér!

Jólaóróarnir eru úr húðuðu áli og fylgir hvítur silkiborði með þeim.Mjög fallegir í glugga sem og á jólatréð. Falleg og einföld gjöf sem auðvelt er að senda í pósti. Stærð: 12 cm x 12 cm

Jólaóróar – smella hér!

Lifa- Njóta- Elska og Næra er eitthvað sem við ættum öll að iðka og því er tilvalið að bera slík lífsins orð á brjósti sér til að minna sig á mikilvægi þeirra. Væmið ? Já en það er allt í lagi, lífið er allskonar og við eigum að njóta þess að vera til og vera nákvæmlega eins og viljum vera. Lífið er núna, njótum !!

Nistin eru bæði í gylltu og silfur og með stillanlegri keðju svo hægt er að lengja úr 40 cm í 45 cm s.s. minni keðjan með steininum. 

Lífsnisti í gulli eða silfri – smella hér!

Það er ótrúlegt hvað þessir standar hafa rokið út enda á frábæru verði og eru ævieign. Snilld til að eiga innan fjölskyldu sem elskar að halda veislur en þeir pakkast flatir saman og alltaf hægt að stinga þeim undir dúkana í hillunni. Fást í hvítu og svörtu og eru úr húðuðu áli. Sterkir og góðir.

Kökudiskur – svartur – smella hér!
Kökudiskur – hvítur – smella hér!

Jólaálfarnir eru ægilega sætir, 3.5 cm á hæð og úr plasti. Þeir eru endurgerð af gamalli hönnun okkar hjóna en við eyddum ansi mörgum kvöldum í að föndra svona álfa fyrir 30 árum og nú hafa þeir fengið “makeover” Þeir koma 3 saman í pakka og verða til í takmörkuðu upplagi. Koma með bandi.

Jólaálfar í hvítu – smella hér!
Jólaálfar í rauðu – smella hér!

Jólaenglarnir koma þrír saman í pakka og eru gerðir eftir gömlu “pastaenglunum” sem allir elskuðu að föndra hérna um árið!

Jólaenglar – smella hér!

Skeiðin hans afa er byggð á skeiðum sem afi hennar Kristu boraði gat á og notaði ávalt í grænar baunir, raiðkál og slíkt. Þær eru algjör snilld og svo skemmtileg tækifærisgjöf.

Skeiðin hans afa – smella hér!

Þessi fallegu laufabrauðsjárn koma úr smiðju Nóa Barkarsonar en þau eru rennd og fræst úr messing. Þau eru vegleg og þung en með þægilegu skafti og kúlu á enda sem liggur vel í lófa. Járnin eru 22 mm breið og skera hefðbundið mynstur. 

Laufabrauðsjárnin koma í fallegum kassa og fylgir góð uppskrift með á umbúðum. 

Laufabrauðsjárn – smella hér!

Þessi list er fjarri því að vera tæmanlegur og ég mæli innilega með að kíkja inn á heimasíðunnar hennar Kristu til þess að sjá meira – endalaust margt fallegt og spennandi  ♥

Smella hér til að fylgja Kristu á Insta!

P.s. Annars langar mig líka til þess að biðja þig, sem þetta lest, að smella á like-takkann ef þú hafðir gaman að póstinum ♥

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *